Tálgun og útivinna
17.08.2020 - 25.09.2020
Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar
Mánudaginn 17. ágúst hefst námskeiðið Tálgun og útivinna. Á námskeiðinu verður farið yfir grunn í tálgun og öruggar aðferðir til tálgunar og meðhöndlunar viðar kenndar auk þess verður kennt að kljúfa og frágangur verkefna sem eykur líkur á langlífi gripa. Auk þess verður kennd brýning og viðhald hnífsins. Markmiðið er að búa til fallega og nytsama hluti, láta sköpunargleðina njóta sín og efla sjálfstraustið. Markmið námskeiðs er einnig að auka verkfærni og efla sjálfstraust með fjölbreyttri iðju.
Í boði verður að gera nytsamlega hluti sem og skrautmuni. Afrakstur vinnunnar verður seldur. Allur ágóðinn rennur í styrktarsjóð Janusar endurhæfingar sem styrkir einstaklinga í endurhæfingunni sem eru í tímabundinni fjáhagslegri neyð.
Á námskeiðinu verða ýmsir hlutir tálgaðir úr blautum viði en einnig unnið með þurran við. Þátttakendur fá leiðsögn í að ná tökum á sérstökum hnífsbrögðum með hárbeittum hnífum og tileinka sér rétta umgengni við bitverkfæri t.d. axir. Dæmi um verkefni sem byrjað er á: sleif, smjörhnífur, kökuprjónn. Að því loknu taka við ögn flóknari verkefni svo sem: fugl, saltbátur, skál, bolli, brauðbretti, sumarleikföng.
Námskeiðið er opinn hópur og geta þátttakendur skráð sig hvenær sem er á tímabilinu. Gert er ráð fyrir að þátttakandi velji að sitja námskeiðið a.m.k. 2 skipti í viku. Skráning fer fram í samvinnu við tengiliði og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Halldór Bjarki Ipsen og Þórdís Halla Sigmarsdóttir.